Gleðilegt nýtt rokkár!

Við þökkum rokkbúðaþátttakendum, foreldrum, samstarfsaðilum og velunnurum kærlega fyrir frábært ár og óskum ykkur gleðilegs nýs árs, uppfullu af gleði, valdeflingu og hávaða! 

Árið 2016 var alveg einstaklega viðburðarríkt og gleðilegt ár hjá Stelpur rokka!, enda var árið 5 ára afmælisár samtakanna og rokkorkan í hámarki. Hér má fletta myndskreyttu ársyfirliti 2016 og lesa nánar um allar rokkbúðirnar, afmælisverkefnin, viðburðina, samstarfið og gleðina á afmælisárinu.

Við hlökkum til að rokka saman af fullum krafti árið 2017!

Nýárskveðja, 

Skipulagsteymi Stelpur rokka!