Við reiðum okkur á stuðning frá vinum og velunnurum til að geta rokkað. Þú getur stutt starfið á ýmsan hátt. 

 

Frjáls framlög

Vinir og velunnarar geta stutt við bakið á okkur og lagt til frjálst framlag til að styðja starfið. Framlag þitt rennur óskipt til að bjóða efnaminni stúlkum upp á ókeypis pláss í rokksumarbúðunum. 

Reikningsnúmer Stelpur rokka!: 301-26-700112

Kennitala: 700112-0710

Frjálst framlag í gegnum Paypal →

 

Áttu hljóðfæri?

Okkur vantar fleiri hljóðfæri fyrir þátttakendur í rokkbúðum. Ef þú átt hljóðfæri sem þú hefur tök á að gefa, endilega hafðu samband við okkur.  

Já, ég get gefið hljóðfæri →

Vertu sjálfboðaliði

Vilt þú hjálpa þátttakendum að æfa saman í hljómsveit og semja lög? Gætirðu kennt byrjendum í litlum hópi á hljóðfæri? Ert þú með tillögu að vinnusmiðju um eitthvað efni tengt femínisma og tónlist? 

Það er ekki skilyrði að vera með bakgrunn í tónlist, bara að vera eldri en 18 ára og hafa áhuga og ánægju af því að vinna saman í hópi og metnað fyrir því að efla ungmenni í gegnum tónlist.

Við bjóðum upp á öflugt fræðslunámskeið fyrir sjálfboðaliðana okkar hvert vor. Sjálfboðaliðar fá ferðakostnað greiddan.

Komdu og vertu með, við hlökkum til að heyra frá þér!

Já, ég vil vera með→