Gjafabréf - Gefðu rokkaða upplifun

Langar fermingarbarninu að læra á trommur?

Nú er hægt er að panta falleg gjafabréf hjá okkur til þess að gefa að gjöf.

Hugmyndin kom frá fullorðnum þátttakendum sem vildu gefa rokkaða upplifun í fermingargjöf og að sjálfsögðu verðum við að þessari ósk!

Gjafabréfin verða persónuleg, merkt með nafni og upphæð, í A4 stærð sem kaupandinn getur prentað út hjá sér.

Hægt er að nota gjafabréfin í öll námskeið sem haldin eru hjá okkur auk þess sem hægt er að leigja Tónlistarmiðstöðina í Völvufelli 17 fyrir hljómsveitaræfingar. Athugið að þótt námskeiðin okkar séu ætluð jaðarsettum kynjum þá má hver sem er leigja rýmið okkar, óháð kyni!

Hafið samband við info@stelpurrokka.is til þess að panta gjafabréf!