Tónleikasalur og æfingarými til leigu

Bókanir og nánari upplýsingar á info@stelpurrokka.is eða í síma 8462594 (Anna framkvæmdastýra)

 
 

Tónleikasalur völvufelli 17

Við bjóðum einstaklingum, hópum, hljómsveitum og samtökum upp á að leigja fasta tíma í tónleikasalnum okkar í Völvufelli 17.

Salurinn er 100 fm að stærð og er útbúinn sviði, hljóðkerfi og öllum helstu hljóðfærum. Salurinn er vel hljóðeinangraður með loftpanelum og sviðstjöldum. Frábær aðstaða fyrir hljómsveitaæfingar.

Salerni og tvö sófahorn eru í rýminu. Gott gólfpláss.

Verðskrá

15.000 -25.000 á mánuði fyrir fastar æfingar, allt að þrisvar í viku fyrir hljómsveitir, hópa eða félagasamtök 

Valfrjálst frá 5.000 til 10.000 krónum á mánuði fyrir fastar æfingar, allt að þrisvar í viku fyrir ungmennahljómsveitir 

Hafið sambandi á info@stelpurrokka.is fyrir nánari upplýsingar.


Hljómsveitaæfingarými Völvufelli 15

Við bjóðum einnig upp á aðstöðu til leigu í hljómsveitaæfingarými okkar í Völvufelli 17.

Rýmið er 45 fm að stærð og rúmar kaffistofu, vinnuhorn fyrir upptökur og hljóðvinnslu og opið hljómsveitaæfingarými.

Salerni í rýminu. Gott geymslupláss.

Verðskrá

15.000 á mánuði fyrir fastar æfingar, allt að þrisvar í viku fyrir hljómsveitir, hópa eða félagasamtök 

Valfrjálst frá 5.000 krónum á mánuði fyrir fastar æfingar, allt að þrisvar í viku fyrir ungmennahljómsveitir 

 


IMG_2773.JPG

tónleikar og aðrir viðburðir

Viltu halda tónleika hjá okkur?

Langar þig að halda karaoke partý í salnum okkar? Þarft þú vinnustofu yfir eina helgi? Hægt er að bóka rýmin okkar fyrir einstaka viðburði.

Verðskrá fyrir dagslanga viðburði

25.000 krónur fyrir salinn (aðgangur að hljóðkerfi og öllum græjum innifalinn)

5.000 krónur fyrir æfingarými (aðgangur að öllum græjum innifalinn)