Rokkbúðum frestað fram til febrúar og mars 2021

Kæru rokkbúðavinir, við vonuðumst til að geta haldið tvennar rokkbúðir fyrir 10 til 12 ára og 13 til 16 ára í október en í ljósi ástandsins í samfélaginu þurfum við enn um sinn að fresta rokkbúðunum.

Við hlökkum til að rokka saman í 10 til 12 ára rokkbúðunum í vetrarfríi grunnskólanna dagana 20. til 23. febrúar.

13 til 16 ára rokkbúðirnar okkar munu fara fram yfir tvær helgar í mars, 13. til 14 og 20. til 21. mars.

Þeir þátttakendur sem þegar voru skráðir til leiks hafa fengið tölvupóst með nýjum dagsetningum. Skráning verður áfram opin fram að búðunum en þátttökufjöldi verður líklega takmarkaður við 20 þátttakendur í hvorum búðum. Nokkur laus pláss eru í báðar búðirnar að svo stöddu.

Hlýjar vetrarkveðjur!