Uppfærðar dagsetningar fyrir smiðjur og lokatónleika haustsins

Vegna samkomutakmarkana þurftum við því miður að fresta DJ smiðju Sunnu Ben sem átti að fara fram 30. október. Við munum kynna nýja dagsetningu von bráðar.

Við erum vongóð um að okkur takist að halda tónlistarmyndbandasmiðjuna okkar þann 20. til 21. nóvember í Völvufelli 17. Enn er hægt að skrá þátttakendur til leiks hér og allar nánari upplýsingar um tónlistarmyndbandasmiðjuna má finna hér

Að lokum tilkynnum við nýja dagsetningu fyrir lokatónleika haustannar. Þeir verða haldnir föstudaginn 11. desember. Vonandi megum við hafa tónleikana opna öllum en líkur eru á að þeir verði einungis fyrir þær hljómsveitir og þá hljóðfæranemendur sem hafa starfað með okkur í vor. Við látum ykkur vita af framvindu mála.

Á meðan við flest sitjum heima viljum við endilega minna á nýju myndbandaseríuna okkar Gerum þetta saman á vimeo, en þar er m.a. að finna fróðlegt myndband frá DJ Sunnu Ben um skífuþeytingar - tilvalin upphitun á meðan við bíðum eftir að geta hist í eigin persónu!

Farið vel með ykkur öll,

Haustkveðjur frá Stelpur rokka!