Sumarið framundan

Kæru rokkbúðavinir,

Um leið og við hlökkum mikið til að rokka með ykkur í sumar viljum við einnig gera okkar besta til að tryggja öryggi allra rokkbúðaþátttakenda, í ljósi núverandi aðstæðna.

Við höfum frestað skráningu sumarsins til mánudagins 20. apríl og munum nýta tímann í vikunni til að aðlaga sumardagsetningar okkar og fyrirkomulag rokkbúðanna að þessum óvenjulegu tímum.

Við munum birta uppfærðar upplýsingar um dagsetningar og fyrirkomulag rokkbúðanna í lok vikunnar. Ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna í millitíðinni á info@stelpurrokka.is.

Með kærri kveðju frá starfsfólki og sjálfboðaliðum Stelpur rokka!