Út er komið litríkt og lifandi ársyfirlit fyrir árin 2020 og 2021. Þrátt fyrir ýmsar áskoranir voru síðustu tvö ár einstaklega gjöful og gæfurík og uppfull af háværum minningum!
Við opnuðum nýju tónlistarmiðstöðina okkar, héldum úti blómlegu vetrarstarfi, héldum fimm rokkbúðir, endurnýjuðum stuðning við rokkbúðirnar í Tógó og fengum janfréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir störf í þágu jafnréttis á Íslandi - svo fátt eitt sé nefnt!