Nýr áratugur, nýtt nafn!

Stelpur rokka! Nýr áratugur, nýtt nafn!

Á 10 ára starfsafmæli samtakanna er tilvalið að líta yfir farinn veg og gleðjast yfir góðum stundum saman og horfa jafnframt til framtíðar. Á döfinni eru tímamót í starfi samtakanna, til stendur að velja nýtt nafn á samtökin, nafn sem endurspeglar betur fjölbreytt litróf kyngervis og kynvitundar.

Við erum meðvituð um að að hin þrönga kynjaskilgreining sem felst í nafninu Stelpur rokka! er ekki lengur lýsandi fyrir þann hóp sem við þjónustum. Nafnið er útilokandi fyrir marga hópa ungmenna, hópa sem við viljum leggja mikla áherslu á að þjónusta. Við höfum því hafist handa við að velja nýtt kynhlutlaust nafn sem að kjarnar okkar femínísku gildi og vísar um leið í tónlistarstarfið okkar.

Við hlökkum til að flytja ykkur fleiri fréttir af nýju nafngiftinni á komandi mánuðum!

Smelltu hér til að lesa meira um fyrirhugaða nafnabreytingu og senda okkur tillögur þínar að nýju nafni!

As we celebrate our 10 year anniversary, we look back on all our amazing moments together! We are so excited to build upon these moments and get ready for the next 10 years! In the coming months, Stelpur rokka! has plans to change the name of the organisation to better reflect the diversity of genders we serve. Click on the link above to read more about our upcoming name change plans and submit your name idea!