Undanfarnar vikur hafa verið undarlegar en sem betur fer er hægt að spila og semja tónlist hvar sem er, hvenær sem er!
Við vildum styðja við ungmennin okkar sem eru meira heima við en áður og við kynnum með mikillri gleði nýju myndbandaseríuna okkar!
Nýja myndbandaserían okkar heitir Gerum þetta saman! og hún er styrkt af verkefninu List fyrir alla.
Fyrsta myndbandið er frá tónlistarkonunni Rauði, en hún sýnir okkur hvernig við getum notað tónlistarforritið Ableton til að leika okkur með raddlúppur. Hún flytur einnig lag af nýútkominni plötu sinni Semilunar.
Við hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst!