Ný tónlistarmiðstöð samtakanna opnar í Völvufelli!

Við höfum beðið með mikillri eftirvæntingu eftir því að tilkynna um þessi stórtíðindi: Stelpur rokka! munu opna nýja tónlistarmiðstöð í Breiðholti í janúar! 

Um er að ræða fyrsta heilsárhúsnæði samtakanna þar sem fram fer metnaðarfullt tónlistarstarf árið um kring!

Hér er má lesa nánar um tónlistarmiðstöðina í fréttum RÚV

Við hlökkum til að auglýsa fjölbreytta vordagskrá samtakanna á næstu mánuðum - fylgist vel með okkur hér og á stelpurrokka.is