Þá er komið að því! Stelpur rokka! halda opnunarpartý nýrrar tónlistarmiðstöðvar samtakanna í Völvufelli 17 á föstudaginn 17. janúar!
Við bjóðum vini okkar og velunnara hjartanlega velkomna að koma og styðja okkur og samfagna þessu stóra skrefi samtakanna!
Opnunarhátíðin hefst kl 17:30 með veitingum og tónleikar hefjast kl 18.
Rokkrúlletta hefst 20. janúar!
Velkomin í Völvufellið í vor!
Ert þú myndlistarmanneskja??
Myndband úr alþjóðlegu rokkbúðunum
Myndir og myndbönd frá rokkbúðunum eru væntanleg mjög fljótlega en í millitíðinni er hér eitt snilldarlegt myndband sem við þökkum Erasmus+ og Sjúlla kærlega fyrir að útbúa! Elísabet Elma Líndal Guðrúnardóttir filmaði lokatónleikana.
Off Venue Airwaves tónleikaveisla á Loft 7. nóvember
Ný tónlistarmiðstöð samtakanna opnar í Völvufelli!
Alþjóðlegar rokkbúðir hefjast í næstu viku!
Nú styttist óðum í stærsta verkefni samtakanna til þessa, alþjóðlegar rokkbúðir á Hvanneyri!
Við eigum von á 100 þátttakendum og sjálfboðaliðum frá 10 evrópskum rokkbúðasamtökum sem munu eyða viku saman á Hvanneyri við að skapa tónlist, læra um hreyfingavinnu, vinna að margmiðlun og halda að lokum glæsilega lokatónleika í gömlu hlöðunni á Hvanneyri!
Þjórshátíð á morgun, laugardaginn 22. júní
Laus pláss í Kvennarokkið!
Það eru enn laus pláss í háværustu helgi ársins! Kvennarokkbúðirnar okkar sívinsælu fara fram á Egilsstöðum dagana 31. maí til 2. júní!
Engin hljóðfærakunnátta er nauðsynleg til þáttöku, aðeins áhugi fyrir að stíga út fyrir þægindarammann og skapa tónlist í góðum félagsskap í innilegu og styðjandi rými. Valfrjáls þátttökugjöld, frí og niðurgreidd pláss eru í boði. Allur matur innifalinn en þátttakendur gista á eigin vegum á Egilsstöðum.
Skráning er hafin í rokkbúðir sumarsins!
ENGLISH BELOW
Við tilkynnum með gleði að skráning er hafin í rokkbúðir sumarsins!
Í sumar verður rokkað um allt land með þátttakendum á öllum aldri. Við erum sérlega spennt að tilkynna að kvennarokkbúðirnar okkar sívinsælu verða haldnar á Egilsstöðum í ár - kjörið tækifæri til að fara í rokkferðalag!
Við kynnum spennt: MEME Vol. 2 og alþjóðlegar rokkbúðir Á ÍSLANDI!
Í ár munu Stelpur rokka! ráðast í sitt allra stærsta verkefni til þessa: að halda yfir 110 manna alþjóðlegar ungmennarokkbúðir á Hvanneyri í ágúst!
Rokkbúðirnar eru hluti af verkefninu MEME Vol. 2, en MEME stendur fyrir: “Music Empowerment Mobility and Exchange”. Það er Evrópskt samstarfsverkefni sem miðar að valdeflingu ungmenna í gegnum tónlistarsköpun og samvinnu. Verkefnið er styrkt af Erasmus+, samstarfsáætlun ESB.
Við stöndum þó alls ekki ein í þessum stórræðum, því að verkefninu standa alls 12 rokkbúðasamtök víðs vegar að í Evrópu.
MEME Vol. 2 er framhald vel heppnaðs MEME verkefnis síðasta árs, sem fól í sér alþjóðlegar rokkbúðir í Berlín í júlí og ráðstefnu fyrir skipuleggjendur rokkbúða í Belgrad í semptember.
MEME Vol. 2 rokkbúðirnar á Íslandi munu standa yfir í viku, og gera um 60 ungmennum á aldrinum 16-30 ára, ásamt yfir 30 leiðbeinendum og sjálfboðaliðum frá a.m.k. 10 löndum, kleift að koma saman, læra á hljóðfæri, mynda hljómsveitir og semja lög, prófa sig áfram á sviði kvikmyndagerðar og fjölmiðlunar, deila reynslu sinni og læra um verkefnastjórnun og hvernig hægt er að byggja upp alþjóðlega hreyfingu.
Meðan á búðunum stendur munum við bjóða samstarfsaðilum, fjölmiðlum og öðrum áhugasömum á opið hús til að kynna sér verkefnið og það sem það stendur fyrir.
Við bjóðum jafnframt öll hjartanlega velkomin á lokatónleika búðanna, laugardaginn 10. ágúst. Nánari upplýsingar um stað og tíma væntanlegar, svo fylgist með hér á síðunni, samfélagsmiðlum Stelpur rokka!, eða:
Rokkárið 2018 í máli og myndum!
Music Empowerment Mobility and Exchange: rokkbúðaundiraldan sem mun breyta heiminum!
Nú fer að líða að lokum MEME: Music Empowerment Mobility and Exchange, sjö mánaða löngu alþjóðlegu verkefni sem Stelpur rokka! áttu stóran þátt í að móta og leiða á árinu.
Af því tilefni langar okkur að deila með ykkur þessari ótrúlegu vegferð í gegnum frásagnir, myndir, myndband og auðvitað tónlist! Njótið :)
Það er erfitt að lýsa svona reynslu í orðum eingöngu.
Við kynnum því með stolti hljóðupptökur af öllum lögunum sem samin voru í rokkbúðunum í Berlín, ásamt stuttu myndbandi frá lokatónleikunum (textað á nokkrum tungumálum):
UM VERKEFNIÐ
Verkefnið hlaut styrk frá Erasmus+, samstarfáætlun ESB, og er samstarf 11 rokkbúðasamtaka frá 10 löndum víðs vegar um Evrópu. Samtökin eru ólík en starfa öll í anda rokkbúðahefðarinnar og miða að valdeflingu ungmenna sem upplifa mismunun á grundvelli kyns eða kyngervis. Flest leggja jafnframt áherslu á að ná til ungmenna sem búa við færri tækifæri af ýmsum ástæðum. Markmið verkefnisins var að gefa ungmennum og skipuleggjendum samtakanna tækifæri til að skapa alþjóðlegt rokkbúðarými þar sem þau gætu lært hvert af öðru, stutt hvert annað og tekið þátt í að byggja upp öflugt samstarfsnet evrópskra rokkbúða.
Yfir 60 ungmenni og meira en 50 leiðbeinendur og skipuleggjendur tóku þátt í annars vegar alþjóðlegum rokkbúðum í Berlín í júlí, og hins vegar rokkbúðaráðstefnu fyrir skipuleggjendur í Belgrad í september.
Báðir viðburðir, dagskrá þeirra, innihald og öll framkvæmd var unnið í láréttu samstarfi allra þátttökusamtakanna. Hver og ein samtök lögðu fram einstaka reynslu, þekkingu, sjálfboðaliða og ungmenni til að verkefnið gæti orðið að veruleika.
ROKKBÚÐIRNAR Í BERLÍN
Í rokkbúðunum urðu til 7 hljómsveitir skipaðar um 40 þátttakendum. Aðrir þátttakendur mynduðu fjölmiðlateymi sem sá um að skrásetja búðirnar gegnum myndir, hljóð og vídjó, og skipulagsteymi sem sá um framkvæmd lokatónleikanna auk tónleika með hljómsveitum frá Berlín sem haldnir voru í miðri viku.
Bætið við það ótal vinnusmiðjum, ranghölum tónlistarakademíunnar í Berlín, gistiþorpi úti í skógi, morgunhringjum, hengirúmum, kvölddagskrá, eldhúsvöktum, listrænni ígrundun, 28°á celsíus, 3000 metrum af snúrum, risageitungum, karókí, dansíókí, u.þ.b. 239 excel skjölum, einum snák og lengsta “blóðmána” aldarinnar. Og þá höfum við MEME Berlínarrokkbúðirnar 2018 í stórum dráttum.
RÁÐSTEFNAN Í BELGRAD
Á ráðstefnunni í Belgrad fóru fram yfir 20 fjölbreyttar vinnusmiðjur, “skill-share” og panelumræður um allt frá fjáröflun og græjuskipulagi, yfir í hvernig við getum bætt aðgengi minnihlutahópa að rokkbúðahreyfingunni og eflt virka þátttöku ungs fólks. Auk þess fóru fram vinnufundir, stefnumótun og glæst framtíðarplön (MEME Vol. 2 hér komum við!). Að ógleymdri bátsferð um Dóná, metaltónleikum og jam sessjóni á Laugardagskvöldinu, og þremur ísbúðarferðum í bestu ísbúð í Serbíu.
REYNSLUNNI RÍKARI
Þetta er búið að vera heilmikil vegferð. Sviti og tár. Brött lærdómskúrfa með ýmsum misháum hindrunum í veginum. Í sönnum rokkbúðaanda tókst okkur hins vegar í sameiningu að yfirstíga þær allar. Skapa fyrstu alþjóðlegu hundrað manna (!) rokkbúðirnar sem haldnar hafa verið. Hittast svo á ráðstefnu til að styrkja enn betur samstarfsböndin, deila reynslu, víkka út samstarfsnetið og skipuleggja framtíðarverkefni (og heimsyfirráð - að sjálfsögðu).
Verkefnið hefur eflt þátttökusamtökin á margvíslegan hátt; aukið alþjóðlega meðvitund þeirra og fært þeim nýjar og ferskar hugmyndir til að nýta í starfi sínu og nærsamfélagi. Ótal ungmenni sneru til síns heima með magnaða rokkbúðareynslu í farteskinu og aukna trú á sjálf sig og hvert annað. Sjálfboðaliðar og skipuleggjendur fundu á eigin skinni að ötult og óeigingjarnt starf þeirra skiptir raunverulega sköpum. Í verkefninu tóku líka þátt einstaklingar frá öðrum löndum sem hafa hug á að stofna rokkbúðir, og sneru heim tvíefld, vitandi af þessu vaxandi stuðningsneti rokkbúðasamtaka.
Það verðmætasta sem verkefnið hefur skapað er þó án efa öll hin ómetanlegu vináttubönd, þvert á landamæri. Sú tilfinning að við stöndum ekki í þessu ein, heldur saman. Og saman getum við látið allra fjarstæðustu (og bestu) drauma okkar verða að veruleika!
Rokkbúða- og byltingarkveðjur,
Auður Viðarsdóttir, verkefnastýra
Ásamt Stelpur rokka! tóku eftirfarandi samtök þátt í verkefninu (formlega og óformlega):
Ruby Tuesday e.V. Þýskalandi (gestgjafar rokkbúðanna í Berlín)
OPA / Femix Serbíu (gestgjafar ráðstefnunnar í Belgrad)
Girls Rock Dublin Írlandi
Girls Rock London Bretlandi
Fundacja Pozytywnich Zmian Póllandi
Pink Noise Austurríki
Stowarzyszenie Kobieca Transsmisja Póllandi
Girls Rock! Finland Finnlandi
Popkollo Svíþjóð
LOUD! Jentenes bandleir Noregi
Rock Donna Finnlandi
Gentur rokka Færeyjum
Og hér má finna sameiginlega heimasíðu Evrópunets rokkbúðabandalagsins (Girls Rock Camp Alliance)